Verð frá: 13.490 kr.
Lengd:: 4 klst.
Hvernig væri að skella sér í standbrettaferð á Laugarvatni í sumar og slaka á í heitum pottum Fontana á eftir?
Standbretti (standup paddle boards) eru að tröllríða heiminum sem frábær afþreying á vatni sem hentar öllum.Auðvelt er að aðlaga ferðina að getu hvers og eins. Hægt er að hafa túrinn rólegann og slaka á á brettinu og njóta þess að vera til í unaðslegu umhverfi Laugarvatns. Ef þú hins vegar villt fjör og læti er lítið mál að verða við því.
Áður en ferðin hefst förum við í þurrgalla, skó og hanska þannig að enginn þarf að hafa áhyggjur af því að detta í vatnið. Þegar allir eru klárir skellum við okkur í vatnið og leikum okkur. Allt í allt tekur þetta um 1,5 klst.Þegar komið er í land gefst svo tími til að slappa af í heitum pottum og gufu í Fontana.
Í sumar verða standbrettaferðirnar okkar á sérstöku kynningarverði þannig að nú er um að gera að nýta tækifærið og reyna sig.

- Lengd: 4 klst.
- Erfiðleikastig: Létt
- Hópastærð: 1:8
- Ekki er þörf á reynslu.
- Bretti og ár
- Þurrgalli
- Skór
- Hanskar
- Hlý föt undir þurrgalla