

Verð frá: 9990 kr.
Lengd:: 1.5 - 2 klst.
Skemmtilegt ferðalag í gegnum Gjábakkahelli sem er 364 metrar að lengd. Hellirinn er seinn yfirferðar vegna stórgrýtis. Við komum til með að þurfa að nota hendur jafnt sem fætur til að komast áfram. Hellirinn gengur undir tveimur öðrum nöfnum, Helguhellir og Stelpuhellir.
Við útvegum hjálm, höfuðljós og galla. Við mælum með að okkar viðskiptavinir komi í góðum gönguskóm og með vettlinga til að ferðin verði sem þægilegust.
- Lengd: 1.5 – 2 klst.
- Erfiðleikastig: Létt / Meðal.
- Hópastærð: 1:11
- Ekki er þörf á reynslu af hellamennsku fyrir þessa ferð.
- Hjálm
- Höfuðljós
- Gönguskór
- Hanska